Ég átti spjall við Adda Gröfu um daginn þar sem við ræddum ýmislegt, þó umræðurnar hafi aðallega verið um Jón SKÓFLU. Við vorum nefnilega að heyra að kappinn ætlaði að bjóða upp á snjómokstur í vetur eftir gríðar gott gengi í mokstrinum núna í sumar. Á undan vetri kemur haust og vorum við Addi að pæla hvort það væri ekki gaman að fara að moka upp fiskum í byrjum sept, ( Nonni kemstu með verkfærinn???? ) Málið er að við mundum allt í einu eftir þvi að við fórum nú eitt sinn í veiðferð fjórir galvaskir drengir sem endaði svona misvel. En þá náðum við aldrei aðal markmiðinu ss að leggja netið í vatnið sem við ætluðum að veiða úr. Þannig að nú finnst okkur mál að bæta úr því. Það fyrsta sem Addi gerði var að hafa samband við Einar til að tryggja sér með ræðara og að sjálfsögðu skoraðist hann ekki undan enda finnst honum fátt skemmtilegra en að sigla út um höfin blá með Adda Fel sér við hlið. Stefnan var tekinn á hestvatn í Grímsnesi ( rétt hjá Kiðjabergi), foreldrar adda eiga veiðileyfi í vatnið þannig að veiðin er frí. Svo vorum við bara að pæla að leigja bústað á minni borg. Svo um kvöldið verður slegið upp heljarinnar pókermóti. Okkur leist ágætlega á að hafa þetta í byrjun sept ss helgina fyrir 15, hvað segir SKÓFLAN UM ÞAÐ??? en þið hinir???
ss; veiði, póker, fyllerí á borg í kringum 7 sept, hvernig líst mönnum á það???????
En allaveganna var síðasti stjórnarfundur í gær og þá var ýmislegt ákveðið eins og
Það verða veitt verðlaun fyrir:
Flottasta golfdressir
Fallegustu golfsveifluna
Mesti náttúruunnandinn ( sá sem er oftast utan vallar)
Besti blakmaðurinn ( efast um að einhver eigi séns í tana)
Mesti smassarinn
Mesti mokarinn
Þetta eru flokkarnir sem hægt er að vinna til verðlauna. Verðið fyrir þessa helgi er 2000 kall á kjaft fyrir gistinguna, mæta með pening og borga Kalla þegar þið komið. Golfið verður einhver 2000 kall líka. Og já við erum með þetta hús frá föst - sunnudags. Sjáumst í kvöld
Rétt í þessu var stjórnin að skrifa undir styrktarsamning við Bylgjulestina um að Bylgjulestinn yrði aðalstyrktaraðili "Víkdívu" útihátíðar okkar sem fram fer núna um helgina. Bylgjan mun koma að hátiðinni á þann hátt að þeir munu mæta með Bylgjulestina á flúðir þar sem þeir halda sína hátíð en svo um kvöldið munum við sameina þessar hátíðir á Útlaganum þar sem ball mun verða haldið. Eins og allir vita er Hemmi Gunn aðalmaðurinn í Bylgjulestinni og mun hann koma og veita verðlaun fyrir golfmótið. Á fundinum í dag var tekið fyrir málið með gistinguna, þegar það var krufið kom í ljós að við höfum húsið frá föstudegi til sunnudag það er semsagt ekkert mál að mæta á föstudaginn og nýta aðstöðuna. Gistipláss í húsinu er á bilinu 14-16.
Þeir sem eru komnir í húsið eru:
Bomba I Bomba II Robbi Rikki Nonni( kannski + 1) Andrés Jóhanna Vigga
Það eru semsagt 8-9 mans búinn að panta í húsinu sem þýðir að það eru 5-7 pláss laus. Fyrsti panta fyrstir fá.
Nú er heldur betur farið að styttast í stóru stundina og vona ég að allir séu orðnir jafn spenntir og JÓHANNA en hún hefur ekki hugsað um annað síðasta mánuðinn. Þar sem það er farið að styttast svona í þetta þá þurfum við að fá á hreint hverjir ætla að mæta. Eins og staðan er í dag er enn nóg pláss í húsinu, þeir sem eru búnir að panta þar eru Bomban, Jón bóndi og Robbi( hann tók það reyndar fram að hann þyrfti tveggjamanna herbergi þar sem hann ætlaði heldur betur að hözla þetta kvöld). Húsið tekur 14 mans í gistingu, ef þið hafið áhuga á að gista í húsinu endilega kommentið um það. Endanlegt verð er ekki komið í ljós, það mun ekki skýrast fyrr en við vitum hversu margir ætla að mæta. Við reiknum með að dagskráinn byrji í síðasta lagi klukkan 1 þannig að það er um að gera að mæta tímanlega til að koma sér fyrir og þess háttar. Bara svo þið vitið það þá er fyrsti dagskrárliður golf. Ég myndi mæla með að mæta í síðasta lagi klukkan 12 í syðra langholt og við getum byrjað golfið á réttum tíma.
Fleira var það ekki í bili, endilega kommentið um mætinguna og gistinguna.
ps. Hrós dagsins fær Hulda fyrir að sleppa brúðkaupi fyrir hátiðina.
Á fimmtudaginn var aðeins eitt mál á dagskrá hjá nefndinni en þó að málið hafi aðeins verið eitt var það ekkert smá mál. Málið var að bústaðurinn á flúðum var ekki laus þessa helgi þannig við þurftum að finna eitthvað annað í hvelli, og þá kom SYÐRA LANGHOLT upp á borðið. Eftir að hafa skeggrætt það til hlýtar þá fundum við það út að Syðra Langholt henntar okkur mikið mun betur. En Syðra Langholt er stutt frá Flúðum (10km) og þar er allt til alls. Við fáum hús til afnota sem er með svefnpláss fyrir 14 mans, þar er heitur pottur og stórt grill, við leigðum einnig afnot að hlöðu sem við getum borðað og djammað í. Einnig er nægt tjaldsvæði á staðnum þannig að ekki ætti að fara illa um okkur. Samanlagt kostar þetta 40 þúsund, sem nefndin telur ekki neitt. Nefndin gat ekki neitað þessu boði og einfaldlega bókaði þetta, það var það eina í stöðunni þar sem allt var að fyllast og Nonni var ekki búinn að plana neitt. Því Nonni þarf klárlega að vera í tapliði þeirra gömlu í blakinu. En meira af blakinu, nefndarmenn hafa tekið eftir miklum kvíða í gömlum fyrir blakið og sést það sennilega best í dæmi Einars Hróbjarts, hann var orðinn það kvíðinn að hann sá engan annan kost í stöðunni en að flýja af landi brott eimmitt þessa helgi. Telur nefndinn að Einar hafi einfaldlega ekki geta hugsað sér að tapa enn einu sinni fyrir ungum í blaki, enda er hann ekki enn búinn að jafna sig eftir stóru taphrinuna í mexico. En að öðru, Harpa Helga og Erna komu að máli við nefndina í síðustu viku, en þær nálguðust nefndarmenn í þegar þeir voru að komast í utandagsumræður og eitt er víst, þeim lá mikið á hjarta. Málið er að það hittist svo skemmtilega á að bæði Halli og Johnny verða á landinu þessa helgi og langaði stelpunum mikið til að bjóða sínum heitt elskuðu í hittinginn. Nefndin hlýddi á málflutning þeirra með opnum hug og tók í kjölfarið þá ákvörðun að leifa þessum ungu stúlkum að taka maka sína með sér. Enda Halli og Johnny menn að okkar skapi.
Eftir enn ein símafundinn við Kalla, samtal við Sýruna, hafa séð Guðna í fjarska og síðast en ekki síst, rætt við Andrés þá var ákveðið að skella fram þeirri tillögu um að hafa útihátíðina "Víkdívu" 3 HELGINA Í JÚLÍ, hvernig hentar það fólki????? Við erum sennilega búin að fá bústað á flúðum( nánast í miðbæ flúða). Það geta einhverjir sofið þar en restinn þarf að sofa í tjaldi, eða því sem þeir kjósa að taka með sér. Leigan á þessum bústað er 25000 og fáum við hann leigðan í eina viku. Ef einhver hefur áhuga á að nýta hann framan af vikunni er það velkomið.
EN MÁL MÁLANNA ER SAMT HVORT ALLIR SÉU KLÁRIR 3 HELGINA Í JÚLÍ?????? það verður aldrei hægt að gera öllum til geðs en hvað segið þið nú um þessa tímasetningu??????????????????'
Það er mjög líklegt að við getum fengið fría veiði í Laxá en hún rennur nánast í gegnum flúðir ef ég man rétt, en það skýrist á morgun.
Það er einnig kominn upp sá möguleiki að það gæti orðið strandblaksvöllur á flúðum bara þessa einu helgi, ef svo verður viljum við ( Ungir) hvetja Gamla til þess að drífa sig út á næsta völl og hefja æfingar, ekki veitir af, tölurnar í MEXICO tala sínu máli. En í alvöru talað þá væri það skemmtilegra ef Ungir fengju einhverja samkeppni að þessu sinni, frammistaða ykkar í Mexico var einfaldlega til skammar.
En þá er það komið í bili, en endilega kommentið með tímasetninguna sem fyrst, svo við getum sagt af eða á með bústaðinn.
Nú eru hjólinn heldur betur farinn að snúast, man utd unnu að sjálfsögðu í gær á mjög sanngjarnan og skemmtilegan máta, klárlega einn öruggasti sigur sem sést hefur í meistaradeildinni á síðari árum. En að öðrum málum.
Ég átti símtal við Karl Ágúst áðan og bara þar margt á góma, t.d. það að halda hittingi á Flúðum, þar sem Karl hefur alið manninn í vetur og byggt upp stórveldi í Íslenskum körfuknattleik. En því meir sem við ræddum málinn þvi meir komumst við að því að Flúðir gæti sennilega verið staðurinn fyrir okkur, hann hefur allaveganna marga kosti þeir eru:
1. Kalli þekkir hverja einustu þúfu það vel að hann þorir að glíma við Kjartan upp á það.
2. Þar sem KALLI þekkir vel til Á FLÚÐUM þá gæti hann blikkað mann og annan til að fá góða díla á hinum ýmsu hlutum, td bústað, golfvelli.
3. Þar sem Kalli þekkir vel til á FLÚÐUM er hann tilbúinn að labba með hópinn um flúðir og segja frá helstu staðarháttum, sögu flúða. Og ef við erum heppinn þá gæti Kalli farið með hópinn í eins og eitt gróður hús.
4. Svo er líka mjög góður möguleiki á þvi að hægt sé að redda okkur ókeypis veiði í laxá( það er allaveganna í vinnslu) þar sem Kalli þekkir svo vel til á flúðum.
Hvernig líst fólki svo á flúðir?? Það eru nokkuð margir góðir kostir við flúði, t.d. það er allt þarna, bústaðir, golfvellir, veiðiá. Einnig ræddum við Kalli möguleika þess að setja upp blaknet þeas ef gamlir ÞORA, ég endurtek " EF GAMLIR ÞORA". Einnig er nánast alltaf eitthvað að ske í ÚTLAGANUM ( bæjarskemmtistaðnum) um helgar þannig að við teljum að þetta gæti verið rakið dæmi. En hvað segið þið???
Já það er það loksins orðið staðreynd, Manchester United orðnir enskir meistarar, til lukku með það unitedmenn .
En hvernig er það VIKINGAR og Dívur er ekki mál að hafa einhvern sumarhitting, myndi þessi sumarhittingur koma í stað hingar geysivinsælu og sístækkandi vorhátiðar sem naut gríðarlegra vinsælda hér á árum áður. Þessi sumarhittingur myndi vera þannig byggður upp að það yrðir nægur bjór við hönd, einnig væri skemmtilegt að hafa einhverja afþreyingu við höndina eins og t.d. golf ( væri gaman að halda eitthvað texasskrambúlmót þar sem dregið yrði í lið, tveir og tveir saman í liði, ), veiði( hægt að hafa keppni um stærsta fiskinn, flestu fiskana, flottasta veiði gallann, erótískustu sveifluna, dramalegasta veiðinn og fleira í þeim dúr. Eftir þessa stórdagskrá þá yrði klárlega grillað svo yrði helt í sig meira áfengi og djammað fram eftir nóttu. Spurning að finna stað í nágrenni golfvallar, ódýrrar fiskár þar sem er góður bústaður. Ef einhver veit um stað sem hefur alla þessa kosti þá endilega kommentið um það, þá er það bara eitt, hvaða helgi eða laugardagur í sumar henntar fólki?
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega hafið samband við Róbert í síma 8464190 eða farið inn á síðuna hans, robbidrummer.bloggar.is og hendið á hann línu.
Þorrablótið á Vatninu hefur alltaf staðið fyrir sínu. Að þessu sinni voru 5 víkingar mættir og voru það Andrés, Gunnar Axel, Jóhann (ég), Kjartan Lár og Róbert. Einnig voru 2 dívur mættar og voru það Jóhanna og Anna Guðrún. Góður hópur lagði af stað upp á heiði í blindbyl og hlustaði ekki á neinar kvartanir frá skyldmennum né öðrum um að ekki væri ferðaveður. Í blindbyl keyrðum við og komumst á leiðarenda akkúrat á réttum tíma. En þó átti nú eftir að klæða síg þá. Að þessu sinni var það ekki Sokkurinn sem var hauslaus heldur aðalskyttan frá Keflavíkinni hann Róbert Sem ældi eins og múkki og lenti á trúnaði við mann og annann. Heimferðin var góð hjá fólki fyrir utan næstum því útafakstur hjá Andrési vegna stálplötu og svefnþörf Róberts sem leiddi til þess að Sokkurinn þurfti að keyra heim úr bænum. Ekki voru teknar margar myndir en einhverjar þó.
12. febrúar 2008 klukkan 13:55
Vikingarnir 4 athugasemdir
Þá er Sokkurinn mættur hér við skriftir og langt síðan það hefur gerst.
Við Róbert vorum að pæla hvort að Víkingar ætla að fjölmenna á þorrablótið á Laugarvatni. Það virðist víst vera einhver stemmari hjá Róberti og frú og vill hún endilega fá hann á vatnið á blótið.
Annars er það helsta að frétta hérna frá suðvesturhorninu að Sokkurinn kennir sund í vatnslausri laug og að Róbert kemst ekki í vinnnuna þegar minnsta óveður kemur.
En annars er Róbert búinn að lofa að taka prammann með til að við getum fjölmennt á hann.
Sokkurinn
26. janúar 2008 klukkan 00:09
Vikingarnir 4 athugasemdir